07.04.2012 00:39
Gleðilega Páska.
Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir. Það er frekar rólegt yfir öllu hjá Faxamönnum en ritstjórnarfulltrúi Faxafrétta fór bryggjurúntinn á Föstudaginn langa og tók slatta af myndum þegar Höfrungi AK-250 var slakað niður úr slippnum og einnig er Þerney RE-101 var tekin upp í slipp.
Við birtum nokkrar myndir af Höfrungi hér að neðan en það verða svo fleiri myndir af inná myndaalbúminu.
Myndir af Þerney koma svo fljótlega inná albúmið.






Faxagengið óskar svo öllum landsmönnum jafnt til sjávar og sveita gleðilegra Páska.

Höfrungur AK-250 í slipp í Reykjavík.






Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
01.04.2012 22:43
1.apríl 2012
Sælir lesendur góðir. Svona í tilefni dagsins þá ætlum við ekki að ljúga neinu frekar en fyrri daginn og birta bara myndir frá loðnuvertíðinni en myndirnar eru allar teknar í mars mánuði.













Kv. Faxagengið.

Börkur með nótinna í viðgerð hjá Hampiðjunni.

Júpiter ÞH-363


Ásgrímur Halldórsson SF-250

Þorsteinn ÞH-360

Sigurður VE-15

Birtingur NK-124

Hákon EA-148

Guðmundur VE-29

Börkur NK-122

Lundey NS-14
Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
30.03.2012 19:03
Páskafrí.
Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir jafnt til sjávar og sveita. 



Það er svo sem ekki neinar stórfréttir af Faxamönnum en eftir smá hvíld um síðustu helgi var mætt til vinnu á mánudeginum en eftir var að þrífa skipið en skæð flensa af svokölluðum "Skagastofni" hafði verið að herja á mannskapinn. Það er skemmst frá því að segja að þrifum á skipinu lauk seinnipart dags á þriðjudeginum og þar með var Faxagengið komið í páskafrí.
Fyrir liggur að halda suður í höf eftir páska á svokallaða gráasvæðið suður af Færeyjum og reyna að fiska kolmunna.
Það er svo búið að bæta nokkrum myndum inná myndaalbúmið.
Kv.Faxagengið.

Kap VE-4

Huginn VE-55

Sighvatur Bjarnason VE-81

Víkingur AK-100
Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
23.03.2012 18:19
Vertíðarlok!!!!
Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir. Þá er þessari "Risa smáu" loðnuvertíð lokið en Faxamenn héldu áleiðis til Reykjavíkur á sjötta tímanum í gærkvöldi eftir að hafa tekið hreinsikast útaf Garðskaganum. 







Loðnunótinni ásamt flottrolli var spólað í land á Skarfabakkan, því næst var haldið upp á Akranes til að landa þessum rúmu áttahundruð tonnum sem voru komin í lestar skipsins. Löndun lauk um hádegisbil i dag. Faxinn var svo færður til innan hafnar en Lundey NS-14 beið eftir að komast undir í löndun.
Það var ákveðið að fara ekki í þrif fyrr en eftir helgina því að mjög skæð flensa hefur herjað á mannskapinn síðustu daga.
Við látum svo fljóta með nokkrar myndir sem teknar voru í túrnum.
Kv.Faxagengið.

Álsey VE-2 að dæla

Lundey NS-14

Guðmundur VE-29

Víkingur AK-100

Ásgrímur Halldórsson SF-250

Júpiter að kasta


Ísfélagsskipin Álsey og Júpiter
Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
20.03.2012 01:00
Lokaspretturinn?
Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir. Það er lítið sem ekkert að frétta af Faxanum annað en það að rúntað hefur verið um sitthvorum megin við Snæfellsnesið í leit að loðnu en það er skemmst frá því að segja að nótin fór ekki í hafið í gærdag. Heildaraflinn sem komin er í lestarnar losar væntanlega sexhundruð tonn. Þegar þetta er skrifað þá virðist loðnuflotinn sem var útaf Snæfellsesinu vera kominn á suður stefnu, væntanlega til að leita í Faxaflóanum.
Kv.Faxagengið.

Sighvatur Bjarnason VE-81


Huginn VE-55

Kap VE-4
Kv.Faxagengið.

Sighvatur Bjarnason VE-81


Huginn VE-55

Kap VE-4
Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
18.03.2012 01:13
Snæfellsnesið.
Sælir lesendur góðir. Það er frekar lítið að frétta af Faxanum en eftir að búið var að landa upp úr lestum skipsins var látið úr höfn á Akranesi á áttunda tímanum í gærmorgun. Stefnan var sett á Snæfellsnesið og var kastað fjórum sinnum og aflinn um 450 tonn en hlutfall hængs í aflanum er um 80%, bölvaður lokabragur á þessari annars frekar slöku loðnuvertíð.
Það eru níu loðnuskip á svæðinu sem er nú um 20 sjómílur vestur af Snæfellsnesinu.
Kv.Faxagengið.

Þessar myndir sem sýnum hér voru teknar í síðasta túr en á þeirri fyrstu sjáum við Hákon EA-148.

Huginn VE-55

Stern Frigg og Hákon

Júpiter ÞH-363



Það eru níu loðnuskip á svæðinu sem er nú um 20 sjómílur vestur af Snæfellsnesinu.
Kv.Faxagengið.

Þessar myndir sem sýnum hér voru teknar í síðasta túr en á þeirri fyrstu sjáum við Hákon EA-148.

Huginn VE-55

Stern Frigg og Hákon

Júpiter ÞH-363


Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
- 1
- 2