26.07.2010 19:55
Á landleið.
Sælir lesendur góðir. Helstu tíðindi af Faxamönnum er þau að þeir eru væntanlegir á Vopnafjörð um klukkan níu í kvöld með vinnsluskammtinn sinn eða um 400 tonn af makrílblandaðri demantssíld. Þessi túr var nú frekar leiðinlegur en síðasta halið okkar í Bakkaflóadýpinu reddaði túrnum en nóg um það.
Lundey er nýlega komin undir í löndun þannig að við reiknum ekki með því að það verði byrjað að landa upp úr Faxanum fyrr en um eða eftir miðjan dag á þriðjudag.
Nýjustu tíðindin eru svo að eftir löndun verður skipið fært og bundið tryggilega fram yfir verslunarmannahelgi vegna sumarleyfa í landvinnslunni.
Kv.Faxagengið.
Hildur nýjasta fley Vopnfirðinga. Báturinn er útbúinn með línubeitningarvél og útgerðamaður er Heiðar Kristbergsson.
Mynd tekin í smábátahöfninni í veðurblíðunni síðastliðinn laugardag.