Flettingar í dag: 78
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 332
Gestir í gær: 117
Samtals flettingar: 822309
Samtals gestir: 246049
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:20:54

06.09.2010 19:28

Partrollsveiðar.

Sælir lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxamönnum eru þær að þeir létu úr höfn á Vopnafirði á sjöttatímanum í morgunn eftir að landað hafði verið um 300 tonnum upp úr skipinu.

Stefnan var svo sett á miðin um 60 sjómílur norðaustur af Vopnafirði, á móts við skip HB Granda Ingunni og Lundey en þau hófu partrollsveiðarnar seint í gærkvöldi. Ingunn var komin með ríkisskammtinn sinn um hádegisbil í dag. Faxinn leysti svo Ingunni af við veiðarnar á móti Lundey. Lundarnir létu trollið sitt fara í hafið á fimmtatímanum í dag eftir að hafa verið í smá brasi með trollið en Faxinn verðu í hlutverki hlerans að þessu sinni.

Kv.Faxagengið.

Lundey NS-14 að láta trollið fara í dag.