Flettingar í dag: 97
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 332
Gestir í gær: 117
Samtals flettingar: 822328
Samtals gestir: 246054
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 03:42:06

Færslur: 2012 Febrúar

27.02.2012 22:50

Hrognataka á Vopna.

Sælir lesendur góðir. Faxinn kom til Vopnafjarðar á ellefta tímanum í gærkvöldi og var strax hafist handa við að landa upp úr skipinu en aflanum er dælt með vakúm dælunni upp í vinnsluna en hængurinn er flokkaður frá og frystur á austur evrópu.
Hrognatakan hefur gengið vel en gert er ráð fyrir því að löndun ljúki um miðja nótt.
Trúnaðamenn Faxans fóru í skoðunarferð í "Milljón" í dag og koma nokkrar myndir úr þeirri ferð hér að neðan.
Kv.Faxagengið.

Frystiskipið Silver Horn að lesta frystaloðnu á Vopnafirði í dag.

Loðnan komin inní hús.
Loðnan fer inní þessar tromlur eftir að búið er að skera hana og hrognin 
fara frá og afskurðurinn í bræðsluna.

Hrognin í vinnsluferlinum.







Það voru komin rúm 90 tonn af hrognum þegar Faxamenn voru á 
ferðinni í dag.
Gunnar Sig. að fylgjast með gæðamálunum.

Gæðaeftirlitið á fullu.







26.02.2012 23:20

Hrognin eru komin til Vopnafjarðar.

Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir og aðrir velunnarar Faxafrétta. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann yfirgaf Akranes seint á föstudagskvöldið eftir að vera búnir að gera lestar skipsins klárar fyrir hrognatöku með þrifum og þar sem tveimur tonnum af klór var hringrásað í lestunum. 
Það var svo um hádegisbil á laugardeginum að Rauðisíminn hringdi og leyfi fékkst til að kasta.
Það voru tekin tvö köst suður af Selatöngum, rétt vestan við Krísuvíkurbjarg en aflinn úr þeim köstum dugðu til að fylla á kældan ríkisskammt eða rétt rúm 1100 tonn, já og gott betur því Aðalsteinn Jónsson SU 11 fékk restina úr nótinni. 
Eftir rúma sex tíma á veiðum var sigld af stað áleiðis til Vopnafjarðar en stímið tók svo um 28 klukkustundir en Faxinn renndi að bryggju um hálf ellefuleytið í kvöld.
Það eru svo komnar nýjar myndir inn á myndaalbúmið af Aðalsteini Jóssyni SU 11 og Berki NK 122.
Kv.Faxagengið.

Tróndur í Götu eitt af glæsilegu uppsjávarskipum frænda okkar færeyinga á loðnumiðunum vestan við Krísuvíkurbjarg síðastliðinn laugardag.

Sigurður VE 15 og Huginn VE 55

Börkur NK 122



Aðalsteinn Jónsson SU 11 eitt glæsilegasta skip íslenska uppsjávarflotans 
fær gefins nokkur tonn hjá Faxanum. 

25.02.2012 01:16

Helvítis fokk á drengjunum!!!!!!!

Sælir lesendur góðir. Það er ekki mikið í fréttum hjá Faxamönnum en Faxinn kom inn til löndunar á Vopnafjörð á þriðjudagsmorguninn með 1202 tonn sem fengust í einu kasti í Eyjafjallasjónum eins og fram hefur komið í færslu hér á undan, löndun lauk á tíunda tímanum á miðvikudagskvöldinu og var haldið strax áleiðis á loðnumiðin út af suðvesturlandinu.
Þegar þetta er skrifað eru Faxamenn nýlega farnir út frá Akranesi eftir að hafa gert lestar skipsins klárar fyrir hrognatöku en bæði veður og fullmikil birgðastaða í landi hefur verið þess valdandi að við höfum ekki getað hafið veiðar enn sem komið er.

PS.
Það er búið að vera leiðindar ástand á Internetsambandinu hjá okkur en það er búið að fara ein og hálf klukkustund í að koma þessari færslu í gegn og þolimæðin allveg á þrotum.
Kv.Faxagengið.


Þessi mynd var tekin á miðvikudagskvöldið af mjölskipinu
WILSON CALAIS


Mættum færeyska uppsjávarveiðiskipinu NORÐBORG við Reykjanesið
í dag en þau gerast varla glæsilegri.





.


21.02.2012 20:38

Löndun á Vopnafirði.

Sælir lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann kom inn til Vopnafjarðar rétt fyrir klukkan fimm í morgun eftir 23. klukkustunda stím af miðunum í Eyjafjallasjónum. 
Það var þröngt á þingi í Vopnafjarðarhöfn en Ingunn AK 150 var undir í löndun og lýsisskipið Key Fighter var að lesta 1800 tonn af lýsi. Það var lítið um bryggjupláss þannig að það var lagst utan á Ingunni en löndun upp úr lestum Faxans hófs svo á fjórða tímanum í dag.
Kv.Faxagengið.


KEY FIGHTER að lesta 1800 tonn af lýsi.



Félagi Guðjón á leið í sýnatöku ásamt áhafnarmeðlim Key Fighter

Búið að tengja við lýsislögnina.

Ingunn AK 150 undir í löndun og Faxinn utaná.



Helgi, Haukur, Gunni afmælisbarn dagsins, Jens og Gúndi

Helgi, Haukur og Jens

Ingunn að verða klár til að yfirgefa Vopnafjörð.

Búið að sleppa og olíugjöfin í botn og Vopni kvaddur með söknuði.

20.02.2012 16:27

Komnir,farnir,fullir!!!!!!!!

Góðan og margblessaðan daginn landsmenn allir jafnt til sjávar og sveita. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann kom á miðin gjöfulu í Eyjafjallasjónum á þriðja tímanum í nótt. Það var tekin ein snörp handbremsubeyja suður af Holtsósnum, flautað, fallhlífarnar í hafið og nótin rann hnökralaust úr nótakassanum og í hafið og þegar upp var staðið skilaði þetta kast Faxamönnum 1150 tonnum sem dugði vel til að fylla á allt laust rými sem í boði var í kælingu.
Sjálfsagt hefur verið töluvert meiri afli í nótinni en átta stroffur slitnuðu niður á nótinni í átökunum.
Stopið á miðunum var því í styðsta lagi að þessu sinni eða rétt rúmir þrír tímar. Stefnan hefur verið sett á okkar " ástkæra og ylhýra" Vopnafjörð og er áætlaður komutími drengjanna að bryggju á Vopna rétt fyrir klukkan fimm í nótt.
Kv.Faxagengið.


Þegar þessi mynd var tekin var búið að dæla tæpum þrjúhundruð
tonnum úr nótinni.






Létt yfir drengjunum

Hjalti að græja glussaslöngurnar

Gullið streymir í lestarnar.



Stýrimennirnir óvenju-einbeittir að fylgjast með dælingunni.

Það var farið í að laga stöðuna á stroffulagernum á meðan dælt var.

19.02.2012 17:01

Farnir frá Vopnafirði.

Góðan daginn lesendur góðir. Helstu tíðindi af Faxanum eru þau að það var landað rúmlega 1150 tonnum af loðnu upp úr lestum skipsins þar af 242 tonnum í frystingu í        " Nýja " uppsjávarfrystihús HB Granda á Vopnafirði en afgangurinn 910 tonn fóru í bræðslu en töluverð áta var í tveimur fyrstu köstunum í túrnum.
Landfestum var svo sleppt á fjórða tímanum í nótt og stefnan sett suður fyrir land og á loðnumiðin sem eru þessa stundina í Eyjafjallasjónum en stímið frá Vopna er um tuttugu tímar og er áætlaður komutími Faxans á loðnumiðin því um miðnætti.
Kv.Faxagengið.


Faxinn mætti kompanískipinu Ingunni AK-150 útaf Stokksnesinu á leið á Vopnafjörð með "slatta" eða um 1200 tonn sem fengust í tveimur köstum.





Bergey VE-544

Smáey VE var líka á veiðum. 

17.02.2012 20:34

Á leið til Vopnafjarðar

Sælir lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að landfestum var sleppt á Akranesi á tíunda tímanum á miðvikudagskvöldinu og haldið rakleitt á loðnumiðin suður af landinu.
Það voru tekin tvö köst á fimmtudagskvöldinu en aflinn innihélt fullmikið af átu fyrir okkar smekk, það var því gert hlé á veiðunu en svo voru tekin tvö köst í morgun austur af Skarðsfjöruvita en aflinn úr þeim dugðu til að fylla á í kælinguna, samtals um 1150 tonn.
Félagar okkar á kompanískipinu Lundey NS-14 nutu líka góðs af síðasta kastinu því að um 200 tonnum var dælt úr nótinni og yfir í lestar gamlabláus.
Áætlaður komutími Faxans til Vopnafjarðar er á sjöunda tímanum í fyrramálið ef veður helst þokkalegt.
Kv.Faxagengið.

Við mættum Álsey VE-2 á leið á miðin en þeir voru með lestarnar smekkaðar eins og eðlilegt er á þessum árstíma.



Birtingur NK-124 var líka fulllestaður.









Sighvatur Bjarnason VE-81 að draga nótina í morgun.



Þorsteinn ÞH-360 að kasta nótinni í morgun.

15.02.2012 14:04

Löndun á Akranesi

Góðan daginn lesendur góðir. Það er allt frekar rólegt hjá Faxamönnum en þeir komu inn til löndunar á Akranes um þrjúleitið í gærdag. Huginn VE-55 var nýlega komin undir í löndun þannig að það varð töluverð löndunarbið hjá strákunum en Huginn var með um 1850 tonn.
Það var svo á öðrum tímanum í nótt sem Faxinn var færður undir í löndun og pumpað upp úr einni lest en þá var allt orðið kjaftfullt í bræðslunni þannig að gera þurfti hlé á löndunni.
Þegar þetta er skrifað er byrjað að pumpa upp á ný en ekki er ljóst hvenær löndun kemur til með að ljúka.
Kv.Faxagengið.

Sigurður Ólafsson var á rúntinum á milli loðnuskipana.





Vilhelm að snúast á miðunum útaf Jökulsárlóninu.

Víkingur AK 100 fyllti sig í gær og hélt til Færeyja með aflann.

13.02.2012 23:11

Jökulsárlónið!!!

Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann kom á loðnumiðin á tólftatímanum  í morgun og tók tvö köst, fyrra kastið var 850 tonn og seinna 650 tonn. Það var þokkalegt veður á miðunum ekkert alltof mörg skip á bleyðunni. Það var stoppað um fimm klukkustundir á miðunum og er Faxinn nú á leið á Akranes ásamt "nýjasta HB Grandaskipinu"  Huginn VE en þeir eru um þremur tímum á undan en miða við gangin í augnablikinu þá má reikna með því að vera á Skaganum um miðjan dag á morgun.

PS. Það koma svo fljótlega fleiri myndir teknar í dag en netið er svo djöfulli hægt þessa stundina að síðustjórarnir nenna þessu ekki eins og stendur.
Kv.Faxagengið.

Vilhelm Þorsteinsson EA-11 og Jökulsárlónið framundan

Beitir NK-123 og Vilhelm Þorsteinsson EA-11

Nýja HB Grandaskipið að dæla á miðunum í dag.

Kap VE-4 á meiri ferðinni framhjá Faxanum



Aðalsteinn Jónsson SU-11

12.02.2012 21:02

Reykjavík.

Sælir lesendur góðir. Eftir smá yfirferð á líklegri loðnuslóð fyrir norðan land var tekið hreinsikast í Húnaflóanum og sett á fulla ferð áleiðis til Reykjavíkur. Klukkan var rétt rúmlega tvö í dag þegar Faxinn lagðist að bryggju í Reykjavík nánar tiltekið að Skarfabakka en þar var stóru loðnunótinni spólað í land og grunnnótin tekin um borð ásamt því að toghlerunum var hent í land.
Það var svo á sjötta tímanum í dag sem landfestum var sleppt og stefnan sett á loðnumiðin suðaustur af landinu.

Stóru loðnunótinni spólað í land við Hampiðjuna.



11.02.2012 03:01

Haldið út í óvissuna????

Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að landfestum var sleppt um áttaleitið í gærkvöldi eftir að landað hafði verið um 1000 tonnum af loðnu upp úr lestum skipsins.
Stefnan var sett norður fyrir land og er ætlunin að freista gæfunar á svipuðum slóðum og í síðasta túr eða á Grímseyjarsundinu, áætlað er að vera á veiðisvæðinu í morgunsárið.
Víkingur AK-100 hefur verið á veiðislóðinni síðustu klukkustundirnar ásamt Færeyska loðnuskipinu Fagrabergi en ekki er vitað til þess að þeir hafi fundið neina loðnu í veiðanlegu magni.
Sennilega endar þetta á því að siglt verði til Reykjavíkur og stóru-nótinni spólað í land og grunnnótin tekin um borð.
Kv.Faxagengið.


Þessar myndir eru teknar í síðasta túr sunnan við Grímsey
en á
myndinni er Birtingur NK-124, Ingunn AK-150 ásamt Jóni Kjartanssyni SU-111


Birtingur og Jón Kjartansson

Birtingur NK-124

09.02.2012 09:16

Grímsey

Góðan og blessaðan daginn Grímseyingar og aðrir landsmenn jafnt til sjávar og sveita. Helstu tíðindi af Faxanum eru þau að eftir að hafa landað rúmum sjöhundruð tonnum af eðal-loðnu hjá uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði var látið úr höfn á áttundatímanum á miðvikudagsmorgunin og stefnan sett á Grímsey.
Faxinn var komin á svæðið á fimmta tímanum í gær og eftir fjögur köst var aflinn orðinn tæp 1000 tonn og þar sem afla vantaði í vinnsluna á Vopna var ákveðið að setja stefnuna á Vopnafjörð og er áætlaður komutími að bryggju rétt fyrir klukkan sjö í kvöld.
Kv.Faxagengið.


Haukur Hauks átti afmæli í túrnum og var náttúrulega haldið upp á það
með viðeigandi hætti.


Nýji Birtingur NK-124/áður gamli Börkur NK-122 var að veiðum rétt
suður af Grímsey þegar Faxinn mætti á svæðið.

Kompaní skipið Ingunn AK-150 var líka á svæðinu en varð fyrir því óláni að sprengja nótina og urðu þeir að halda í land með 550 tonn.

06.02.2012 19:59

Landað á Vopna.

Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir. Það er frekar lítið að frétta hjá ritstjórnarskrifstofu Faxafrétta á stór-Kópavogssvæðinu en eftir smá yfirferð í netheimum fengust smá upplýsingar af HB Grandaflotanum en byrjum á Faxanum en hann er að renna að bryggju á Vopnafirði en ekki eru fréttir af aflabrögðum. 
Ingunn AK-150 er þessa stundina stödd um 8 sjómílur norðaustur af Bjarnarey eftir að hafa landað á Vopna. Lundey NS-14 er stödd útaf Reykjanesinu á austurleið en Lundarnir voru í löndun á Akranesi en þeir höfðu viðkomu á útleiðinni í borg óttans og skiptu um nót. 
Gamla brýnið Víkingur AK-100 landaði á Akranesi og hélt vestur fyrir land og er útaf Horni þessa stundina. 
Kv.Faxagengið.

Júpiter ÞH-363 í slipp í Reykjavík nóv. 2009 en það eru komnar nokkrar myndir af Júbbanum inn á myndaalbúmið.

04.02.2012 18:17

Faxinn í löndun á Vopna.

Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir. Þessi færsla er sett inn á síðuna af ritstjórnarskrifstofunni fyrir sunnan en báðir ritstjórarnir sýndu af sér vítavert kæruleysi með því að fara í frí á sama tíma, mætti halda að þeir störfuðu fyrir einhvern lífeyrissjóðin.
Eftir því sem best er vitað þá er Faxinn að landa 1250 tonnum á Vopnafirði. Af kompanískipunum er það helst að frétta að Lundey er á leið á Akranes með 1500 tonn og er þegar þetta er skrifað útaf Norðfjarðarhorninu, Ingunn er á veiðum um 60 sjómílur norðaustur af Langanesi og Víkingur er staddur útaf Eyjafirðinu á leið á Akranes með fullfermi eða um 1400 tonn.
Það koma svo þrjár myndir hér að neðan teknar í feb. 2008.
Kv.Faxagengið

Huginn VE-55

Sighvatur Bjarnason VE-81

Víkingur AK-100
  • 1