26.01.2012 16:52
Kvótinn aukinn í 765 Þúsund tonn!!!
Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir. Það er svo sem ekki neitt merkilegt í fréttum hjá Faxamönnum en trollið var látið fara rétt fyrir hádegi og tekin ein stutt skafa syðst í trollhólfinu en uppskeran frekar rýr.
Þegar þetta er skrifað er verið að kippa 40 mílur í norður en þar mun vera eitthvað lífvænlegra.
Annar þá voru að koma frétt af vef HAFRÓ http://www.hafro.is/ varðandi loðnukvótan í ár en við á Faxafréttum ætlum að birta fréttina hér að neðan.
Það sem kemur í hlut Íslendinga af heildarkvótanum ætti að vera um 590 þús. tonn. Miða við þær forsendur ætti loðnukvóti HB Granda að vera um 110 þús. tonn.
Það sem kemur í hlut Íslendinga af heildarkvótanum ætti að vera um 590 þús. tonn. Miða við þær forsendur ætti loðnukvóti HB Granda að vera um 110 þús. tonn.
Kv.Faxagengið.
Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
24.01.2012 07:28
Akranes
Sælir lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann tók þrjú höl í túrnum sem gáfu samtals um 1500 tonn og þegar þetta er skrifað er skipið á siglingu í Eyjafjallasjónum og á leið á Akranes og er áætlaður komutími þangað um klukkan sex í dag.
Kv.Faxagengið.

Svo er bara að vona að áhöfnin á Árna Friðrikssyni komi með glaðning
fyrir loðnusjómenn þegar niðurstöður seinni loðnumælingarnar liggja
fyrir í vikulokin.

Kv.Faxagengið.

Svo er bara að vona að áhöfnin á Árna Friðrikssyni komi með glaðning
fyrir loðnusjómenn þegar niðurstöður seinni loðnumælingarnar liggja
fyrir í vikulokin.
Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
22.01.2012 23:13
Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir jafnt til sjávar og sveita. Það er allt þokkalegt að frétta af Faxagenginu en Faxinn kom á miðin um 90 sjómílur austur af Gletting á sjöunda tímanum í morgun og var trollinu lúðrað með hraði í hafið og togað í fjóra tíma og aflinn 600 tonn. Hal númer tvö var svo híft eftir kvöldmatinn eftir sex tíma tog og aflinn úr því hali 450 tonn sem var leyfilegur ríkisskammtur og í framhaldi af því var gert sjóklárt og stefnan sett á Vopnafjörð en Adam var ekki lengi í paradís því eftir 30 sek. siglingu kom ákvörðun um að fylla á lestarnar og að farminum yrði svo landað á Akranesi.
Þegar þetta er skrifað er trollið nýkomið í hafið en útlitið ekkert sérstakt.
Eftir því sem við á Faxafréttum best vitum þá er kompanískipið Víkingur AK-100 búinn að fylla og lagður af stað á Akranes.
Kv.Faxagengið.

"Útsala hvað" Þessir voru eins og verstu "Kerlingar" á útsölu á Vopna
og eftir því sem þeir sögðu væri hægt að gera góð kaup. Haukur og Alli
bróðir sögðu það það væri gasalega gott efni í þessari flík!!!

21.01.2012 23:27
Haldið til hafs á ný!!!
Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann lét úr höfn á tíunda tímanum í kvöld eftir að landað hafði verið rúmum áttahundruð tonnum upp úr lestum skipsins.
Siglingin á loðnumiðin er um 110 sjómílur frá Vopnafirði og er reiknað með að vera á miðunum á sjöunda tímanum í fyrramálið.
Kv.Faxagengið.

Lundey NS-14 að koma inn til löndunar með lestarnar smekkaðar
af loðnu.

Siglingin á loðnumiðin er um 110 sjómílur frá Vopnafirði og er reiknað með að vera á miðunum á sjöunda tímanum í fyrramálið.
Kv.Faxagengið.

Lundey NS-14 að koma inn til löndunar með lestarnar smekkaðar
af loðnu.

Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
20.01.2012 20:35
Blíða á loðnumiðunum.
Sælir lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann kom á miðin sem eru að þessu sinni um 100 sjómílur austur af Vopnafirði á þriðja tímanum í nótt og eftir smá leit var trollinu lúðrað í hafið. Það var svo híft í morgun og aflinn um 200 tonn.
Þegar þetta er skrifað þá er Faxinn búinn að taka tvö höl en aflinn úr seinna halinu 450 tonn. Það var smá kaldafýla þegar Faxinn mætti á bleyðuna en nú er komið hið fínasta veður.
Uppsjávarskip HB Granda Faxi, Lundey og Víkingur eru á loðnumiðunum, Lundey NS-14 er búin að taka eina snarpa sköfu og aflinn er um 600 tonn, engar fréttir er af Víking AK-100 en Ingunn AK-150 verður á miðunum seint í kvöld.
Kv.Faxagengið.

Faxamenn mættu Víking AK-100 á útleiðinni á fimmta tímanum í gær en
hér koma nokkrar myndir af þeim gamla.

Silver Horn á útleið frá Vopnafirði eftir að hafa lestað frystarafurðir.
Víkingur að bíða eftir að Faxinn komi út úr innsiglingunni.

Víkingur á leið að Ásgarðinu til að taka stóru loðnunót Lundeyjar.

19.01.2012 13:23
Brælustopp á Vopna.
Góðan daginn lesendur góðir. Það eru nú frekar lítið að frétta af Faxanum annað en hann liggur við Ásgarðinn á Vopnafirði eftir að landað hafði verið 868 tonnum af loðnu upp úr lestum skipsins. Það fór tæpur helmingur aflans í frystingu eða rúm 415 tonn.
Lundey NS-14 er nú undir í löndun og frystiskipið Silver Horn er að lesta frosnar afurðir.
Faxamenn reikna með því að yfir gefa naflann á fimmta tímanum í dag en Víkingur AK-100 kemur á svipuðum tíma en þeir á Víking munu taka stóru loðnunót Lundeyjarjarlanna.
Kv.Faxagengið.

Þessar myndir voru teknar þegar Faxinn kom inn til löndunar á þriðjudagsmorgunin.

Frystiskipið Silver Horn.

17.01.2012 15:47
Naflinn!!!!
Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir jafnt til sjávar og sveita. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann var á veiðum í ágætis veðrið um 100 sjómílur norðaustur af Vopnafirði. Það voru teknar þrjár sköfur að þessu sinni sem gáfu rétt rúmlega 800 tonn.
Það var lagt af stað í land rúmlega eitt í nótt en komutími að bryggju á Vopnafirði var um tíuleytið í morgun. Það var smá töf útá firði á meðan fraktarinn Silver Horn var að leggjast að bryggju.
Af kompanískipunum er það helst að frétta að Ingunn AK-150 hélt af stað af miðunum um hádegisbil með lestarnar smekkaðar og áfangastaður Akranes. Lundey NS-14 fór frá Vopnafirði rúmlega fjögur í nótt.
Það er ekki hægt að segja að veðurkortinn séu glæsileg fyrir næstu daga, vonandi að þau gangi ekki eftir.
Kv.Faxagengið.
Ps. Internetið hefur eitthvað verið að stríða okkur en erfitt hefur verið að koma færslum í gegn en vonandi stendur það til bóta.

Faxinn á Vopnafirði í síðustu löndun.

Bræðragengið!!

Gunni, Binni og Kalli

Haukur að hífa!!

Pokinn að koma í ljós.

Strákarnir að reima í sundur.

14.01.2012 14:36
Á landleið!!!!!
Góðan og blessaðan daginn lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að síðasta halið í túrnum gaf um 400 tonn en heildaraflinn er 1050 tonn, veiðisvæðið er um 60 sjómílur norðaustur af Langanesi.
Flest loðnuveiðiskipin eru á veiðum á þessum slóðum.
Stímið á Vopnafjörð er um 90 sjómílur og er áætlaður komutími að bryggju á Vopna rétt rúmlega átta í kvöld.
Kv.Faxagengið.

"Djö,,,,Sniiiiiiiillllllingar"
Flest loðnuveiðiskipin eru á veiðum á þessum slóðum.
Stímið á Vopnafjörð er um 90 sjómílur og er áætlaður komutími að bryggju á Vopna rétt rúmlega átta í kvöld.
Kv.Faxagengið.

"Djö,,,,Sniiiiiiiillllllingar"
Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
13.01.2012 20:53
Föstudagurinn 13.
Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir. Það er svo sem frekar lítið að frétta af Faxanum annað en það er búið að taka þrjár sköfur og aflinn tæp sexhundruð tonn.
Eftir því sem Faxafréttir hafa hlerað þá er ekki sami kraftur í veiðunum og hefur verið en þó hafa einstaka skip verið að reka í fimmhundruð tonna sköfur. Veiðisvæðið er nú um 60 sjómílur norðaustur af Langanesi.
Kv.Faxagengið.

Þessi mynd átti nú að koma í upphafi loðnuvertíðar.

Eftir því sem Faxafréttir hafa hlerað þá er ekki sami kraftur í veiðunum og hefur verið en þó hafa einstaka skip verið að reka í fimmhundruð tonna sköfur. Veiðisvæðið er nú um 60 sjómílur norðaustur af Langanesi.
Kv.Faxagengið.

Þessi mynd átti nú að koma í upphafi loðnuvertíðar.

Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
11.01.2012 20:24
Brælustopp á Vopna.
Góðan daginn lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að það var landað rúmum 830 tonnum af loðnu uppúr lestum skipsins að þessu sinni en aflinn fór bæði í vinnslu og bræðslu en töluverð áta var í aflanum. Brælustoppið hefur verið notað til að skipta um flottroll ásamt því að endurnýja snurpuvírinn.
Kompanískipin voru einnig í löndun á Vopnafirði en Lundey lét úr höfn um klukkan tíu í morgun og síðustu fréttir af Lundunum voru þær að það væri enn þungur sjór á miðunum og eitthvað lítið að sjá.
Faxamenn reikna með því að láta úr höfn á miðnætti og að Ingunn fari út með morgninum.
Kv.Faxagengið.

Þessi mynd var tekin í rokinu í gærkvöldi af Hofskirkju.

Gullnahliðið?

Ingunn AK-150

09.01.2012 10:45
Á landleið!
Sælir lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að hann lagði af stað í land á tíunda tímanum í morgun með um 800 tonn. Það eru búnar að vera bölvaðar anskotans æfingar á okkur en trollið er ekki að skila okkur nema um tvö hundruð tonnum í hali.
Áætlaður komutími Faxans til Vopnafjarðar er um klukkan fimm í dag en stímið af miðunum er rúmar 90 sjómílur.
Kv.Faxagengið.

Þessi mynd er tekin rétt eftir að Faxinn lagði af stað í land.
Það voru 15-20 m/sek stóran hluta af "Heimstíminu"
Áætlaður komutími Faxans til Vopnafjarðar er um klukkan fimm í dag en stímið af miðunum er rúmar 90 sjómílur.
Kv.Faxagengið.

Þessi mynd er tekin rétt eftir að Faxinn lagði af stað í land.
Það voru 15-20 m/sek stóran hluta af "Heimstíminu"
Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
06.01.2012 21:51
Löndun á Vopnafirði.
Sælir lesendur góðir. Helstu fréttir af Faxanum eru þær að fimmta og síðasta halið í þessum túr var híft á áttunda tímanum í morgun. Aflinn var um tvöhundruð tonn sem dugði til að fylla á lestar skipsins, en áætlaður afli er um 1000 tonn af vel kældri loðnu.
Stefnan var því næst sett á Vopnafjörð en stímið þangað að þessu sinni var um 90 sjómílur.Það var svo skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld að Faxinn renndi að bryggju á Vopna.
Kv.Faxagengið. 
Þessi mynd var tekinn 2008 en á henni má sjá Faxann og rannsóknar-
skipið Árna Friðriksson en hann var mættur í loðnumælingar út af Langanesinu í gær.
Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
05.01.2012 22:30
Fyrsta loðnan komin um borð!!!
Sælir lesendur góðir. Þá er þessi loðnuvertíð formlega hafin hjá Faxamönnum án þess þó að það sé neinn mokstur á bleyðunni en heildaraflinn er tæp 600 tonn sem fengist hefur í þremur hölum. Þessa stundina er Faxinn að toga um 90 sjómílur norðaustur af Vopnafirði og útlitið þokkalegt en við reiknum svo með því að vera komnir undir í löndun um hádegisbil á morgun.
Skipin hafa verið að fá þetta frá 100 og uppí rúm 300 tonn eftir því sem við á Faxafréttum best vitum.Það er þokkaleg traffik á bleyðunni, enda um fimmtán skip eru að toga á sama frímerkinu.
Kv.Faxagengið.

Það voru þokkalegar lóðningar í kvöld.

Trollopið kjaftfullt.

Við látum svo fljóta með tvær myndir sem teknar voru
á kolmunnaveiðum í apríl 2006. Á myndinni er Leifur kokkur að byrja að græja þessar fínu grill-steikur úr Guðlaxi.

04.01.2012 15:39
Loðna 2012
Góðan og margblessaðan daginn lesendur góðir. Faxagengið flaug frá Reykjavíkurflugvelli um hálfátta í gærdag og var Akureyri fyrsti viðkomustaðurinn, því næst var flogið með Norlandair á Vopnafjörð.
Það var á fjórðatímanum í gær að landfestum var sleppt og haldið norður fyrir landið og tekin loðnuleitarleggur fyrir Hafró og lauk þeim leitarlegg um ellefuleitið í morgun og í þessum skrifuðu orðum er Faxinn staddur um 50 sjómílur norður af Melrakkasléttu á austurleið.
Flest loðnuskipin eru nú stödd um sextíu og fimm sjómílur ANA af Langanesi og eftir því sem við á Faxafréttum höfum heyrt þá hafa þau fengið mest um 300 tonn í hali.

TF-NLC á Vopnafjarðarflugvelli í gærmorgun.

01.01.2012 18:08
Gleðilegt nýtt ár!!!
Gleðilegt nýtt ár lesendur góðir. Vonandi að allir hafi haft það gott yfir jól og áramótin. Við á Faxafréttum viljum þakka öllum þeim sem nennt hafa að kíkja á síðuna hjá okkur á liðnum árum.

Nú fer að styttast í þessu jólastoppi en eins og fram hefur komið þá verður farið frá Reykjavíkurflugvelli á þriðjudagsmorgunin 3.jan. 2012 klukkan 07.15 og haldið til Vopnafjarðar en þar liggja tvö af uppsjávarskipum HB Granda, Lundey NS og Faxi en það mun vera blessuð loðnan sem bíður skipana að þessu sinni.
PS. Bætti inn nokkrum áramótamyndum!
Kv. Faxagengið.

Skrifað af Ritsjóra www.123.is/faxire9
- 1
- 2